ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Síbrotamaður í átján mánaða fangelsi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:40 › 2. febrúar 2009

27 ára gamall síbrotamaður var í dag dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir tugi þjófnaða, tilrauna til þjófnaða og fíkniefnalagabrota. Um er að ræða 43 brot sem maðurinn framdi frá í ársbyrjun í fyrra þar til tveimur dögum fyrir jól þegar hann var úrskurðaður í gælsuvarðhald.

Maðurinn sem nú er 27 ára á að baki rúmlega ellefu ára sakaferil. Hann komst fyrst í kast við lögin árið 1997 og hefur síðan þá margsinnis verið dæmdur fyrir auðgunarbrot og örnnur brot. Brotin nú beinast einkum að þjófnuðum úr verslunum en einnig þjófnaði úr heimahúsum og bílageymslu.

Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar 9. maí 2007 en fékk reynslulausn 17. desember sama ár. Sléttum mánuði síðar var hann farinn að gefa út falsaðar ávísanir til að greiða fyrir vörur, samkvæmt ákæru þeirri sem leiddi til sakfellingar í dag. Auk átján mánaðafangelsisvistar verður hann að greiða tæpa milljón krónur í skaðabætur og dómskostnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.