Ekta íslenskur víkingur. Ylfu fannst einkar undarlegt að fá skilaboð frá vinnuveitanda sínum í London um að mæta ekki í vinnu í dag sökum veðurofsans sem fyrir henni er eingöngu hefðbundin íslensk snjókoma.
Ylfa Ýr Steinsdóttir starfar sem sölufulltrúi á skrifstofu í London. Hún var á leið til vinnu í morgun þegar yfirmaður hennar sendir út viðvörun og biður fólk að halda sig heima sökum veðurs. Fyrir Íslendinginn Ylfu er hið mikla óveður sem fréttamenn lýsa í Bretlandi ekkert stórvægilegt miðað við íslenskt vetrarveður.
„Ég var bara á leiðinni í vinnuna þegar ég fékk sms frá yfirmanninum. Þar sagði hann okkur að halda okkur heima í dag því það væri öruggara. Ég sendi honum skilaboð til baka og sagðist alveg geta rölt í vinnuna ef hann vildi að ég mætti.
Þá höfðu hinsvegar allir aðrir sem vinna á skrifstofunni verið búnir að senda yfirmanninum skilaboð með þeim upplýsingum að þeir kæmust ekki í vinnu svo ég yrði líklegast bara ein á skrifstofunni. Ég ákvað því bara að vera ekkert að missa mig í metnaðinum og hef því bara haft það huggulegt heima í dag,“ segir Ylfa.
„Ég var reyndar komin út á lestarstöð þegar ég fékk skilaboðin frá yfirmanninum í morgun en lestarstöðinn var lokuð og fólk stóð fyrir utan í örvæntingu sinni og komst ekkert ferða sinna.“ Ylfa segist þó ekki hafa séð ástæðu til að skella á sig mannbroddum eða klæðast sérstökum kuldaskóm þegar hún fór að heiman í morgun enda sé veðrið fyrir henni alls ekkert svo slæmt.
„Ég kíkti út um gluggann áður en ég lagði af stað og fannst ég alveg nógu vel klædd í 66°N úlpunni. Bretarnir eru hinsvegar margir hverjir í rosalegum kuldagöllum og moonboots en fyrir þeim er þetta hið versta veður og allar samgöngur hafa verið lamaðar í dag.“
Ylfa bjó í Bandaríkjunum sem barn og segir þetta helst minna sig á það þegar gefið var frí í skólunum vegna smávægilegrar snjókomu. „Í Bandaríkjunum var alltaf af og til yfir veturinn þar sem kallað er „Snow Day.“ Þá er gefið frí í skólanum af því að þeir vilja ekki keyra skólabílana. Eitthvað sem við þekkjum ekki á Íslandi nema í algjöru fárviðri svo okkur finnst alltaf frekar fyndið þegar gert er svona mikið úr smá snjókomu í öðrum löndum.“
Ylfa býr á jarðhæð miðsvæðis í London en segir fjarri lagi að snjórinn sé svo mikill í London að hann nái upp fyrir gluggana. „Nei alls ekki. Það var verið að tala um einhvern fimmtán sentímetra snjó hérna sem ég kannast nú ekkert við. Ég vill frekar meina að þetta séu svona fimm sentímetrar í kringum mig allavega.“
Krista Hall





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar