ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Lítið upp úr stóriðju að hafa

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
12:37 › 2. febrúar 2009

„Í heild má segja að efnahagslegur ávinningur Íslands af starfsemi stóriðjuvera sé lítill og hafi farið minnkandi á síðustu árum. Hann er nú vart meira en 0,1 – 0,2% af þjóðarframleiðslu fyrir hvert álver. Arður af íslenskum auðlindum kemur aðallega fram í hagnaði iðjuveranna og rennur vegna lágra skatta að mestu ósnertur í vasa hinna erlendu eigenda.“

Þannig tekur Indriði H. Þorláksson, fyrirverandi ríkisskattstjóri, til orða í nýrri grein um efnahagsleg áhrif erlendrar stóriðju sem hann hefur birt á vefnum.

Hann segir ennfremur að í pólitískri umræðum, m.a. um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu, séu allir sammála um að náttúruauðlindirnar séu eign þjóðarinnar og að tryggja beri yfirráð yfir þeim. Hann spyr hvort ekki sé holur hljómur í þeirri umræðu á sama tíma og náttúruauðlindunum sé ráðstafað í þágu útlendinga og þeim gefinn arðurinn af þeim.

Indriði segir ennfremur í samantekt sinni um efni greinarinnar: „Helsti efnahagslegi ávinningur landsins af starfsemi stóriðjuvera í eigu erlendra aðila eru þeir skattar sem þeir greiða. Ætla má að skattgreiðslur meðalálvers sé um 1,2 milljarðar króna á ári. Það er einungis um 0,1% af þjóðarframleiðslunni. Skattar stóriðju skila sér auk þess seint vegna hagstæðra afskriftareglna. Á skattalöggjöfinni og í samningum við álfyrirtækin eru auk þess göt sem rýrt geta þessar tekjur.“

„Skattareglum hefur á síðustu árum verið breytt á þann veg að skattgreiðslur stóriðjuvera hafa verið lækkaðar um helming. Af þeim sökum verða tekjur landsins af álverum á mörgum næstu árum minni en þær hefðu orðið án fjölgunar álvera og án skattabreytinganna. Landið virðist einnig hafa afsalað sér valdi til að breyta sköttum á félög til hækkunar.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.