ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Klám í beinni útsendingu Super Bowl

innblad@dv.is
14:25 › 2. febrúar 2009
Leikstjórnendur liðanna, Ben Roethlisberger til vinstri og Kurt warner til hægri eftir leikinn í nótt.

Leikstjórnendur liðanna, Ben Roethlisberger til vinstri og Kurt warner til hægri eftir leikinn í nótt.

Þeir sem horfðu á Super Bowl á sunnudagsnóttina á Comcast kapalstöðinni í Tuscon Arizona þurftu skyndilega að horfa upp á klám í beinni útsendingu í fjórða leikhluta.

Skömmu eftir að The Cardinals tóku forustuna í fjórða leikhluta var leiknum skyndilega skipt út fyrir tíu sekúndna klámmyndabrot í beinni útsendingu.

Í myndbrotinu sást kona draga lim karlmanns út um buxnaklauf hans og hann síðan dangla limnum í konuna. Málið er nú rannsókn hjá sjónvarpsstöðinni. Um heimagerða upptöku var að ræða og segja forsvarsmenn Comcast stöðvarinnar að málið sé litið alvarlegum augum enda sé mikið af ungum börnum sem horfi á úrslitaleik Super Bowl.

Ekki er þetta í fyrsta skipti sem hneyksli kemur upp í beinni útsendingu Super Bowl en skemmst er frá því að minnast þegar önnur geirvarta Janet Jackson poppaði upp úr dressi söngkonunnar í einu af skemmtiatriðunum í leikhléi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.