Halaleikhópurinn frumsýndi leikritið Sjeikspírs Karnival í Halanum í Hátúni um helgina. Höfundur leikgerðar er Þröstur Guðbjartsson sem einnig leikstýrir sýningunni. Unnið er upp úr þremur verkum Shakespears, Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV.
Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki, til að létta honum lífið. Við sögu koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum Shakespears, til dæmis Malvólíó, Tóbías Búlki, Andrés Agahlýr og fleiri. Átján leikarar taka þátt í sýningunni og annar eins hópur stendur að baki þeim við hin ýmsu störf.
Halaleikhópurinn var fyrir rúmum sextán árum með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla” og hefur starfað óslitið síðan. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnuninni hafa verið settar upp sýningar á hverju ári og stundum fleiri en ein.
Nánari upplýsingar á halaleikhopurinn.is.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar