Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi samkvæmt heimildum DV þremur bankastjórum Seðlabankans bréf snemma í dag þar sem þess er óskað að þeir segi af sér störfum og samið verði við þá um starfslok.
Jóhanna sagðist í Kastljósþætti Sjónvarpsins í kvöld ætla að kynna frumvarp á morgun um breytingar á Seðlabankanum sem fela í sér að skipaður verði einn bankastjóri í Seðlabankanum. Staða seðlabankastjóra verði auglýst og hann ráðinn á faglegum forsendum, eins og kveðið er á um í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra segir að frumvarpið verði kynnt á ríkisstjórnarfundi á morgun, en það felur í sér að bankastjórnarþríkeyki í Seðlabankanum verið lagt niður eins og áður segir.
Jóhanna setti jafnframt í dag Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Ragnhildur fylgir Jóhönnu úr félagsmálaráðuneytinu þar sem hún var ráðuneytisstjóri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna