ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Fyrsta svikna kosningaloforð Obama

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:09 › 2. febrúar 2009
Barack Obama, nú þegar búinn að svíkja sitt fyrsta kosningaloforð á stuttri valdatíð sinni.

Barack Obama, nú þegar búinn að svíkja sitt fyrsta kosningaloforð á stuttri valdatíð sinni.

Barack Obama mun nú þegar hafa svikið sitt fyrsta kosningaloforð þrátt fyrir að hafa aðeins verið í embætti í nokkra daga. Þessu heldur vefsíðan Politifact.com fram og CNN-fréttastofan gerir málið að umfjöllunarefni sínu í dag.

Í kosningabaráttunni lofaði Obama því að öll lög sem ekki væru neyðarlög yrðu birt í fimm daga á vefsíðu Hvíta hússins áður en þau væru samþykkt, svo fólk gæti kynnt sér þau. Eins og greint hefur verið frá samþykkti Obama sín fyrstu lög á fimmtudaginn var, svokölluð Lilly Ledbetter-lög, sem auðvelda konum að höfða mál gegn yfirmönnum sínum fyrir kynbundið launamisrétti.

Aðstandendur Politifact halda utan um öll loforð forsetans og fylgjast með hversu vel hann stendur sig í að uppfylla þau. Þar sem Lilly Ledbetter-lögin voru ekki kynnt á vefsíðu Hvíta hússins í fimm daga áður en þau voru samþykkt, er því lýst yfir að Obama hafi nú þegar svikið kosningaloforð sitt.

Þrátt fyrir að þykja kannski ekki stórvægilegt loforð í ólgusjó bandarískra stjórnmála þá hefur síðan og yfirlýsing hennar vakið gríðarlega athygli og ekki allir á eitt sáttir með niðurstöðuna. Aðstandandi síðunnar stendur þó við fullyrðinguna í samtali við CNN.

Vefsíða Politifact.com



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.