ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Breytir skattkerfinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:00 › 2. febrúar 2009

„Við hljótum nú að leita leiða til að dreifa sanngjarnar byrðunum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann ætlar að hefja vinnu við breytingar á skattkerfinu. Hann segir eðlilegt að þeir sem hæst hafa launin beri meiri byrðar en þeir sem lægst hafa launin.

Steingrímur var í viðtali í fréttum Útvarpsins. Hann sagði að breytingar á skattkerfinu komi ekki til framkvæmda fyrr en á næsta ári, þar sem þegar hafi verið gengið frá fjárlögum þessa árs.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.