Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í Ríkissjónvarpinu að frumvarp um greiðsluaðlögun hafi ekki verið nógu vel unnið frá hendi Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Upplýsti Jóhanna að nýr dómsmálaráðherra yrði að lagfæra handvömm Björns og koma þannig skuldugum heimilum í landinu til hjálpar. Nokkur deila hefur sprottið milli Björns og Jóhönnu eftir að hún sagði að slugsi ráðherrans væri um að kenna að frumvarpið væri enn ekki orðið að lögum. Sagði Björn að þetta væri ósatt þar sem hann hefði þegar kynnt málið í ríkisstjórn. Nú upplýsir Jóhanna að Björn hafi haldið málinu lengi í ráðuneytinu áður en hann hreyfði við því. Frumvarpið sé nú ófullnægjandi og um sé að kenna handvömm Björns og að endurvinna þurfi að málið.
Björn sagður slugsa og klúðra frumvarpi
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna