Björn Jörundur, tónlistarmaður og Idoldómari. Símtöl hans við hinn dæmda birtast í dómnum. Virðast snúa að viðskiptum með fíkniefni. Mynd: Stefán Karlsson
Þorvarður Davíð Ólafsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir, og fjölmörg brot tengd fíkniefnamisferlum og brot á umferðarlögum. Þá var hann dæmdur fyrir brot á vopnalögum. Afrit af símtölum Þorvarðar við Björn Jörund Friðbjörnsson, tónlistarmann, birtast í dómnum. Meint fíkniefnaviðskipti virðast þar vera rædd.
Þorvarður var sviptur ökurétti ævilangt, 385,70 grömm af kókaíni, 9,91 grömm af amfetamíni, 8,83 grömm af hassi, 2,9 grömm af maríhúana og 1,29 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni gerð upptæk. Vopnasafn hans var einnig gert upptækt en þar á meðal var riffill, haglabyssa og gasvopn. 300 þúsund krónur í reiðufé voru haldlögð að auki.
Björn Jörundur flæktur í málið
Það sem athygli vekur, til viðbótar við langan lista afbrota Þovarðar, er að Björn Jörundur Friðbjörnsson er nefndur á nafn í dómnum þar sem fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hljóðritaði samtöl Þorvarðar við meinta viðskiptavini sína. Samræður Þorvarðar við Björn Jörund áttu sér stað á tímabilinu 19. apríl til 26. maí á síðasta ári.
DV.is birti hér samtölin eins og þau birtast í dómnum. Björn Jörundur er kallaður B í afriti samtalanna.
24. apríl 2008:
B: „Mér áskotnaðist miði fyrir einn."
Þorvarður: „Já heyrðu þú getur alveg rölt við, ég er hérna heima."
B: „Ókei."
13. maí 2008:
Þorvarður: „Hæ, heyrðu var þetta ekki bara ás?"
B: „Eee, eða tveir ef hægt, það ekkert mál sko."
Þorvarður: „Það er bara tólf sko. Bara tólf kall."
B: „Ertu kominn eða?"
Þorvarður: „Nei, nei, það er bara tólf, tólfþúsundkall. Eruð þið tveir, eða hvað?"
B: „Já, já."
22. maí kl. 00.24:
B: „Hæ, ertu nokkuð á ferðinni ennþá?"
Þorvarður: „Eee, ég gæti rúllað á þig fljótlega."
B: „Ég ætlaði að fá hinn þarna félagann."
Þorvarður: „Já."
B: „Tvíburabróðirinn."
Þorvarður: „Ókei."
30. maí, kl. 23.09:
Þorvarður: „Ég hoppa bara, ég hoppa bara út, hvað varstu að hugsa um?"
B: „Bara einar."
Þorvarður: „Ekki málið."
B: „Heyrðu, ég labba þá niður, ég verð kominn eftir fimm mínútur."
Í símtali mínútu síðar heyrist:
Þorvarður: „Hæ."
B: „Hæ, heyrðu, höfum þá tvo, því ég er með félaga mína og þeir klára þetta allt."
Þorvarður: „Ókei."
Ekki fíkniefnaviðskipti
Í samtali við Vísi.is nú fyrir stundu neitaði Björn Jörundur að um fíkniefniviðskipti hefði verið að ræða. Hann hefði þó verið yfirheyrður vegna málsins. Hann viðurkenndi að þekkja Þorvarð Davíð.
Dómurinn hvarf
Þess ber að geta að dómurinn yfir Þorvarði Davíð hvarf af vef héraðsdómstólanna nú fyrir stundu. En þau svör fengust hjá Héraðsdómi Reykjavíkur að hann hefði „dottið út og unnið væri að því að setja hann inn á nýjan leik.“







Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“