Í nýrri könnun MMR á áhrifum kreppunnar á atvinnu fólks kemur fram að 17,7 prósent aðspurðra hafa misst vinnuna eða starfshlutfall þeirra hefur verið skert vegna efnahagsástandsins.
Í könnun MMR kom í ljós að 5,8 prósent segjast hafa misst atvinnuna vegna kreppunnar. Það er í nokkrum takt við tölur Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi þar sem fram kemur að atvinnuleysi mældist 6,6 prósent í janúar.
12,5 prósent aðspurðra hafði orðið fyrir því að starfshlutfall þeirra hafði verið skert.
13,9 prósent svarenda kváðust óttast að missa vinnuna og 25,3 prósent sögðu að einn eða fleiri fjölskyldumeðlimur hefði misst vinnuna vegna kreppunnar. 32,4 prósent sögðu að einn eða fleiri nánir vinir sínir hefðu misst vinnuna vegna kreppunnar.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
