ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Flestir bera traust til Jóhönnu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:47 › 16. febrúar 2009
Jóhanna Sigurðardóttir nýtur mests trausts aðspurðra í nýrri könnun MMR.

Jóhanna Sigurðardóttir nýtur mests trausts aðspurðra í nýrri könnun MMR.

58,5 prósent aðspurðra segjast bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum.

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, fylgir fast á hæla Jóhönnu í könnuninni en 48,5 prósent segjast bera mikið traust til hans. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, koma næstar með mikið traust um og yfir 41 prósent svarenda.

Skiptar skoðanir með forsetann
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kemst ekki mjög hátt á listanum en 32,5 prósent svarenda sögðust bera mikið traust til hans. Heldur fleiri, eða 37,8 prósent, segjast era lítið traust til forsetans.

Ef litið er til stuðnings við stjórnmálaflokka má sjá að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon njóta bæði nokkuð afgerandi trausts meðal stuðningsmanna beggja stjórnarflokkanna. Leiðtogar fráfarandi ríkisstjórnar, þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, virðast aftur móti njóta lítils stuðnings utan sinna flokka. Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir eru þeir ráðherrar sem njóta mests trausts meðal þeirra sem segjast styðja Sjálfstæðisflokkinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?