ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Uppskrift að góðu ástarsambandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:03 › 14. febrúar 2009
Haltu áfram að sinna áhugamálunum eftir að þú ert komin(n) í sambúð. Farðu í gönguferðir með vinunum, fjallaklifur eða horfðu á fótbolta.

Haltu áfram að sinna áhugamálunum eftir að þú ert komin(n) í sambúð. Farðu í gönguferðir með vinunum, fjallaklifur eða horfðu á fótbolta.

Flestir þekkja tilfinninguna sem fylgir því að vera í nýju ástarsambandi og alla rómantíkina sem því fylgir. Því lengra sem dregur á sambandið færist þó yfirleitt ró yfir ástfangna parið og því oft ágætt að vera meðvitaður hvað þarf að gera til að viðhalda neistanum. Í bókinni 1001 ráð til að slaka á, sem nýlega kom út, má finna nokkur góð ráð til að viðhalda góðri sambúð. DV birtir nokkur ráð úr bókinni í tilefni Valentínusardagsins.

Hlæið saman
Hlátur dregur úr streitu, eykur vellíðan og eyðir ágreiningi - á meðan brandararnir eru ekki niðurlægjandi og á kostnað annarra.

Hleyptu makanum að
Ekki gleyma sambandinu við makann, sama hversu mikið þú vinnur. Gefið ykkur tíma til að njóta samvista hvort við annað.

Vertu góður vinur
Vinátta er forsenda allra samdbanda. Hlustaðu á maka þinn, inntu hann eftir því hvernig honum líði og endurtaktu með breyttu orðavali svo það sé greinilegt að þú viljir skilja og hjálpa. Ekki grípa fram í eða botna setningu viðkomandi.

Vertu viðbúin(n) málamiðlun
Í sambúð er ekki mögulegt að fá alltaf sínu fram. Slakaðu á og sættu þig við það.

Ekki sofna ósátt
Reynið ætíð að sættast fyrir svefninn. Svefnlaus nótt og særandi augntillit morguninn eftir verður aðeins til að eyðileggja næsta dag líka.

Óvænt ánægja
Reyndu að varðveita „hið óvænta,“ sem fylgir nýjum samböndum, taktu skyndiákvarðanir eins og að skreppa niður í fjöru í vitlausu veðri, panta gistingu á hóteli upp úr þurru eða koma heim með blómvönd af engu tilefni.

Eldaðu fyrir elskuna þína
Skiptist á að elda og útbúa rómantíska máltíð - kertaljós og tónlist.

Lifi rómantíkin
Kampavín, kertaljós, blóm og súkkulaði - kannski gömul tugga - en hún virkar.

Morgunmatur í rúmið
Kaffi, ristað brauð og dagblöðin - það verður ekki betra.

Ekki gleyma áhugamálunum
Haltu áfram að sinna áhugamálunum eftir að þú ert komin(n) í sambúð. Farðu í gönguferðir með vinunum, fjallaklifur eða horfðu á fótbolta.

Leitaður hjálpar
Ef þér finnst svipuð vandamál koma upp í núverandi sambandi og því fyrra skaltu leita hjálpar ráðgjafa og reyna að komast að rótum vandans.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.