ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

„Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:09 › 14. febrúar 2009
Jóhanna keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision söngvakeppninni.

Jóhanna keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision söngvakeppninni. Mynd Joseph Henry Ritter

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng sig inn í hjörtu landsmanna ung að árum. Hún var í kvöld valin fulltrúi Íslands í Eurovion í vor en lag hennar Is it True eftir Óskar Pál Sveinsson hlaut náð fyrir augum þjóðarinnar. Í helgarblaði DV er ítarlegt viðtal við þessa ungu söngstjörnu.

„Þegar maður á sér draum um framtíðina þarf maður að fórna ýmsu. Ég hef frá 9 ára aldri verið undir mikilli pressu og þurft að vaxa hratt úr grasi, enda segja sumir að ég hagi mér eins og gömul kerling,“ segir Jóhanna Guðrún sem að sló í gegn aðeins níu ára gömul. Það hefur margt breyst síðan þá og nú er litla stelpan með kraftmiklu röddina orðin að glæsilegri söngkonu. Hún hefur vakið mikla athygli undanfarið í ögrandi hlutverki sínu sem Madonna í samnefndri sýningu á Broadway.

En skemmtanabransinn er enginn dans á rósum eins og Jóhanna orðar það sjálf og hefur hún þurft af hafa mikið fyrir sínu. Einmanaleikinn var stundum skammt undan þegar hún var á flakki um heiminn og því fékk Jóhanna að kynnast þegar hún veiktist mikið þegar hún bjó ein í Kaupmannahöfn á síðasta ári. Jóhanna hefur þó alltaf haft gott fólk í kringum sig sem hefur hjálpað henni að ná markmiðum sínum.

„Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala,“ segir Jóhanna sem er fædd í Danmörku árið 1990 og bjó þar fyrstu tvö ár ævi sinnar. „Það kom aldrei neitt annað til greina hjá mér en að syngja og ég hafði alltaf mjög mikinn áhuga á því að syngja fyrir aðra. Alveg frá því að ég var pínulítil.“ Jóhanna fluttist svo til Íslands með fjölskyldu sinni og bjó í Reykjavík til átta ára aldurs. „Þá flutti ég til Hafnafjarðar og hef búið þar síðan.“

Ástin, veikindin og fleira í helgarblaði DV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.