James Mason fékk hjartaáfall eftir að hafa verið haldið í sundlauginni gegn vilja sínum. Mynd: Photos
41 árs gömul kona hefur játað fyrir dómi að hafa valdið dauða 73 ára gamals eiginmanns síns í sundlaug á heimili þeirra hjóna í Ohio í Bandaríkjunum.
Konan, sem heitir Christine Newton John, hélt eiginmanni sínum í sundlauginni gegn vilja hans og hvatti hann til að halda áfram að synda til að koma sér í betra form. Eiginmaður hennar, James Mason, fékk hjartaáfall í kjölfarið sem rakið er til of mikils líkamlegs álags.
Saksóknarar ákærðu Christine eftir að hafa séð myndband af atvikinu. Lögreglustjórinn, Joseph Stehlik, segist hafa talið skiptin sem Christine kom í veg fyrir að Mason færi upp úr lauginni. Um var að ræða 43 skipti.
Lögreglan hóf rannsókn á andláti Mason eftir að hún fékk ábendingu um að hann hefði þurft að þola illa meðferð að hálfu eiginkonu sinnar. Mason og Christine kynntust árið 1993 en þá var Christine að vísu karlmaður. Hún fór í kynskiptiaðgerð nokkrum árum síðar og gengu þau síðan í hjónaband árið 2006.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung