ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Mótmælt í miðbænum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:25 › 14. febrúar 2009
Frá mótmælunum við Alþingishúsið í lok janúar. Þá kveiktu mótmælendur meðal annars í vörubrettum.

Frá mótmælunum við Alþingishúsið í lok janúar. Þá kveiktu mótmælendur meðal annars í vörubrettum. Mynd: DV

Um 15 til 20 manns komu saman á Lækjartorgi rétt fyrir klukkan tíu í kvöld til að mótmæla. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni drógu einhverjir úr hópnum vörubretti með sér og hótuðu að kveikja í. Ekki hefur þó komið til þess enn að sögn varðstjóra. Hann segir að verði það gert verði eldurinn umsvifalaust slökktur.

Í tilkynningu frá hópnum segir meðal annars: „Byltingunni er ekki lokið. Enn hefur ekkert breyst og því hrópum við enn sömu kröfur og áður. En þó líta stjórnvöld á okkur sem ofdekruð börn, sem hafa fengið snuðið sitt, kosningar í vor, og krefjast þess að við séum þæg og beita til þess lögreglunni.“

Þar segir enn fremur: „Lögreglustjóri getur bannað notkun hátalara, hljómflutningstækja, hljóðfæra eða annars þess háttar á eða við almannafæri ef ástæða er til að ætla að hún valdi verulegu ónæði eða truflun.Við þegjum ekki. Við öskrum og skemmtum okkur um leið.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.