Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir því að meira verði gert til að sporna við mansali í heiminum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gefin hefur verið út. Í skýrslunni segir að tvö helstu vandamálin í sambandi við mansal séu annarsvegar hversu fáir skilji hvað mansal er og hinsvegar á hvern það hefur áhrif á.
Í skýrslunni segir að mansal geti verið allt frá viðskiptum með börn til að stunda kynlíf til viðskipta með fólk til að stunda þrælkunarvinnu. Viðskipti með fólk í kynferðislegum tilgangi er þó algengasta birtingarmynd mansals samkvæmt skýrslunni. Átta af hverjum tíu fórnarlömbum mansals eru seld í kynferðislegum tilgangi.
Loks er hvatt til þess í skýrslunni að yfirvöld í þeim löndum þar sem mansal er hve algengast fái víðtækari heimildir til að sakfella þá einstaklinga sem taldir eru tengjast mansali. Til að það sé unnt þurfi yfirvöld þó að leggja meira á sig til að skilja vandann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu