Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, líkti Seðlabankanum við neðanjarðarbyrgi Hitlers í ræðu á fundi Alþýðuflokksfélagsins sem haldinn var í dag. Hann sagði að þjóðin hefði sérfræðistofnanir sem greiddu há laun og nytu forréttinda. Þar færi fremst í flokki Seðlabanki Íslands. Seðlabankinn ætti að tryggja stöðugan gjaldmiðil og stöðugleika fjármálastofnana.
"Þar inni situr núna í byrgi sínu maður sem er farinn að minna mig á seinustu daga Hitlers. Í staðinn fyrir að koma út sjálfviljugur í ljósi þess að hann hafi setið yfir hruni gjaldmiðilsins og hruni fjármálakerfisins þá átti hann vitanlega að koma út sjálfviljugur, bljúgur og auðmjúkur, og biðjast afsökunar. Lágmark: So sorry! Allra minnst. Nei. En hann er að grafa sig niður í bunkerinn eins og Hitler í Berlín. Það er að vísu enginn rauður her sem sækir að Seðlabankanum. En það er búsáhaldabylting sem heimtar réttlæti. Megi það ná fram að ganga."
Um 90 fundargestir klöppuðu fyrir Jóni Baldvin að þessu sögðu.
Hitler, kanslari Þýskalands, flutti í neðanjarðarbyrgi við stjórnaráðið Berlín í janúar 1945, nokkrum mánuðum áður en rússneski herinn umkringdi borgina í lok seinni heimstyrjaldarinnar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna