Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er ósammála Jóni Baldvini Hannibalssyni um að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætti að víkja úr stóli sem formaður flokksins fyrir Jóhönnu. Jón Baldvin sagði á fundi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í dag að hann muni sjálfur bjóða sig fram víki Ingibjörg ekki fyrir Jóhönnu.
Í kvöldfréttum RÚV í kvöld sagðist Jóhanna vera ósammála Jóni. Ingibjörg sé sterkur leiðtogi og formaður flokksins. Hún muni koma tvíefld til baka úr veikindaleyfi og segir hún að flokkurinn beri fullt traust til hennar. Ekki sé inn í myndinni að bjóða sig fram til forystu í flokknum.
„Ef við krefjumst þess að maðurinn í Seðlabankanum axli ábyrgð með því að víkja verðum við þá ekki að gera þá kröfu til formanns okkar að hún víki? Er það boðlegt að ganga til kosninga og leggja mál í dóm kjósenda undir óbreyttri forystu?“ spurði Jón Baldvin í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun