ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Jóhanna Guðrún fer til Rússlands

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:35 › 14. febrúar 2009
Jóhanna Guðrún verður fulltrúi Íslands í Moskvu í vor.

Jóhanna Guðrún verður fulltrúi Íslands í Moskvu í vor. Mynd/DV

Það verður Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem verður fulltrúar Íslands í Eurovision söngvakeppninni í Rússlandi í vor. Lag hennar Is it True eftir Óskar Pál Sveinsson bar sigur úr býtum í undankeppninni en úrslitin voru tilkynnt í Sjónvarpinu í kvöld. Í öðru sæti varð Ingó með lagið Undir regnboganum eftir Hallgrím Óskarsson.

Í helgarblaði DV er ítarlegt viðtal við Jóhönnu. Um lagið hans Óskars Páls segir Jóhanna Guðrún: „Ég heyrði þetta lag hjá Óskari og fannst það flott. Síðan fór ég og söng þetta og það fékk bara svona góð viðbrögð. Ég var ekkert að pæla í því að vinna en núna er þetta bara orðið mjög spennandi,“sagði Jóhanna en nú er komið í ljós að hún verður fulltrúi Íslands í Moskvu í vor.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.