Robert Wade segir að það myndi senda jákvæð skilaboð, meðal annars til aðila á fjármálamarkaði, ef seðlabankastjóri viki. Mynd: DV
„Ég þekki ekki stöðu seðlabankastjóra samkvæmt stjórnarskrá ... en ég veit að brottför hans myndi senda jákvæð skilaboð til aðila á fjármálamarkaði, annarra ríkisstjórna og alþjóðlegra stofnana um að Íslendingum sé alvara í því að komast aftur á kjöl,“ segir Robert Wade, hagfræðiprófessor við London School of Economics í grein í Morgunblaðinu.
Wade bendir á að Willem Buiter og Richard Portes og fleiri hafi einnig lýst þessu yfir. Hann segir að Ísland þurfi alla þá hjálp sem hægt sé að fá hvað varðar efnahagslega ráðgjöf og tæknilega aðstoð. Ráðning mjög hæfs seðlabankastjóra með góð alþjóðleg sambönd væri stórt skref fram á við. Það gæti verið æskilegt að leita að slíkum aðila á hinum Norðurlöndunumog ráða hann eða hana strax tímabundið þar til endurreisnin hefst.
Wade segir að hann hafi á undanförnu mánuðum fengið fjölda bréfa frá áhyggjusömum Íslendingum og innflytjendum sem búsettir eru hér á landi. Í einu standi: „Vonleysið hefur nú náð hámarki sínu á heimili mínu. Davíð Oddsson hunsaði einfadlega beiðni forsætisráðherra um að segja af sér. Við erum föst á þessari eyju, dæmd til útskúfunar í langan tíma.“
Wade segir hinsvegar að flestum finnist að með nýja forsætisráðherranum hafi kviknað ný von og sú breyting innan stjórnmálanna sé skref í rétta átt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Ármann verður bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi