ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Íhuga að rukka fanga fyrir klósettpappír

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:55 › 14. febrúar 2009
Burlington hérað íhugar að rukka fanga fyrir notkun á klósettpappír.

Burlington hérað íhugar að rukka fanga fyrir notkun á klósettpappír. Mynd: Photos

Fangar í Des Moines fangelsinu í Iowa í Bandaríkjunum gætu þurft að fara að borga fyrir klósettpappírinn sem þeir nota í fangelsinu. Ástæðan er sú að Burlington, héraðið sem fangelsið er í, þarf að skera niður vegna mikils tapreksturs undanfarin misseri.

Fyrirhugað er að skera niður í útgjöldum héraðsins um 1,7 milljónir dollara, eða rúmlega 190 milljónir króna. Meðal þeirra tillagna sem lagðar hafa verið fram er að láta fanga borga fyrir klósettpappírinn sem þeira nota en þannig má spara nokkur hundruð þúsund krónur á mánuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.