ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi velja prófkjör

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:25 › 14. febrúar 2009
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Mynd: DV

Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi ákváðu að fjölmennu aukakjördæmisþingi í dag að halda prófkjör þann sjöunda mars þar sem kosið yrði í fimm efstu sætin á lista framsóknarmanna í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar.

Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum flokksmönnum í Framsóknarflokknum 2. mars 2009 sem eiga munu kosningarétt í Suðvesturkjördæmi í væntanlegum alþingiskosningum. Niðurstaðan verður bindandi fyrir 5 efstu sæti framboðslistans, þó að teknu tilliti til ákvæða um jafnrétti kynjanna.

Framsóknarmenn í Reykjavík hafa ákveðið að forvalsnefnd, sem kosin var á aukakjördæmisþingi í dag, að forvalsnefnd geri tillögur að framboðslistum flokksins í Reykjavík sem lagðar veri fyrir annað kjördæmisþing, 28 febrúar næstkomandi. Á því þingi munu fulltrúar flokksmanna í Reykjavík kjósa um tillögu forvalsnefndar, og aðrar tillögur sem fram kunna að koma, að skipan í hvert einstakt sæti á listum flokksins í Reykjavík norður og Reykjavík suður.

Í Norðvesturkjördæmi ákváðu framsóknarmenn að fjögur efstu sætin á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu skyldi fara fram með póstkosningu allra félagsmanna í kjördæminu. Munu atkvæðaseðlar verða sendir út þann 3. mars nk. en talning fara fram föstudaginn 13. mars. Skipan í önnur sæti á listann verður ákveðin á kjördæmisþingi sem boðað verður til í framhaldinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.