Einstaklingar sem skila skotvopnunum sínum fá rauða rós og gjafabréf í Best Buy í tilefni Valentínusardagsins. Mynd: Photos
Lögreglan í Suður Karólínu í Bandaríkjunum hefur boðið hverjum þeim sem kemur og skilar skotvopni sínu eina rauða rós í staðinn. Er þetta gert í tilefni Valentínusardagsins. Þá býðst fólki einnig að fá gjafabréf í Best Buy raftækjaverslununum, 50 dala gjafabréf fyrir haglabyssu en 100 dala gjafabréf fyrir skammbyssu.
Chris Cowan talsmaður lögreglunnar í Richaland sýslu segir að árangurinn hafi ekki látið á sér standa. Lögreglan í Columbia hafði þegar tekið við 75 byssum fyrstu 90 mínúturnar. Cowan segir að einn hafi meðal annars skilað sex skammbyssum.
Ekki verður athugað með sakaskrár þeirra sem skila byssunum en skráningarnúmerum verður þó flett upp til að athuga hvort vopnin séu stolin.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu