ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Engar viðræður um áframhaldandi samstarf

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:08 › 14. febrúar 2009
Steingrímur segir að engar viðræður hafi átt sér stað um áframhaldandi stjórnarsamstarf eftir kosningar.

Steingrímur segir að engar viðræður hafi átt sér stað um áframhaldandi stjórnarsamstarf eftir kosningar. Mynd: DV

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að engar viðræður hafi átt sér stað milli Samfylkingar og Vinstri grænna, um að halda áfram stjórnarsamstarfi eftir þingkosningarnar í apríl.

Frá þessu greinir RÚV og hefur eftir Steingrími að samstarfið gangi vel sem auki stemninguna fyrir því að halda samstarfinu áfram. Engar ákvarðanir hafi hinsvegar verið teknar og þvertekur hann fyrir það að einhverjar viðræður hafi átt sér stað.

Steingrímur segir að nauðsynlegt sé að ná samstöðu um hverni farið verði með Evrópusambandsumræðuna og til góðs væri ef næðist samstaða um lýðræðislegan og uppbyggilegan farveg fyrir málið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.