Atvinnuleysi eykst nú hröðum skrefum og er útlit fyrir að það nái áður óþekktum hæðum á vordögum. Vinnumálastofnun birti í vikunni yfirlit yfir stöðu á vinnumarkaði í janúar. Kemur þar fram að skráð atvinnuleysi í mánuðinum var að meðaltali 6,6 prósent, sem jafngildir því að 2,554 manns hafi að jafnaði verð án vinnu.
Að því er fram kemur á vef Greiningar Glitnis er þetta hæsta atvinnuleysishlutfall frá ársbyrjun 1995, þegar atvinnuleysi nam 6,8 prósent af vinnuaflinu. Ólíkt því sem þá var er atvinnuleysi nú ört vaxandi og útlit fyrir að það fari í eða yfir 10 prósent fyrir sumarið.
Fram kemur í yfirliti Vinnumálastofnunar að um síðustu mánaðamót voru 2.136 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í hlutastörfum. Samsvarar þetta tæplega fimmtungi þeirra sem skráðir voru atvinnulausir í janúarlok. Ríflega helmingur þessa fólks fær greiddan hluta atvinnuleysisbóta í samræmi við það sem vantar upp á fullt starfshlutfall, samkvæmt lögum um hlutabætur sem sett voru í nóvember síðastliðnum. Þessi hópur hefur vaxið ört, en móttakendur slíkra bóta voru 668 í desemberlok og 210 í lok nóvember.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun