„Þetta námskeið núna tengist mest erótíkinni og því hvað kveikir í okkur. Erótík tengist því sem hneykslar fólk. Eiginlega andstæðan við pólitíska rétthugsun. Að vera djarfur, ærslast og leika sér. Ögra svolítið sjálfum sér og hinum,“ segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynlífssérfræðingur sem verður með erótískt námskeið fyrir konur á öllum aldri 21. febrúar næstkomandi. Kennslan er í formi fyrirlestra, verkefna og umræðna en þátttaka í verkefnum og umræðum er val.
Kvenskörungurinn segir námskeið af þessu tagi vera nýtt fyrirbæri hérlendis. Konur hafi lýst yfir áhuga á að sækja svona námskeið en hvort þær þori þegar til kemur eigi eftir að koma í ljós.
„Það verður farið í algengar spurningar og nýlegar rannsóknir sem ég hef kynnt mér. Í kynlífi er maður oft mjög berskjaldaður og því gott að hafa bein í nefinu. Aukið sjálfstraust ýtir undir að fólk sé óhræddara við að gefa af sér og sé ekki að fela sig andlega. Það getur því leitt til betra kynlífs. Við erum öll með einhverja komplexa, en þegar við höldum samt okkar striki lærum við að vaxa með þeim,“ segir Jóna brosandi enda með kynlífið á hreinu.
Valentínusardagurinn ekkert spes
„Ég held að sumir séu vanir að gera eitthvað við slík tilefni en hjá öðrum er þessi dagur ekkert sérstakur,“ segir Ingibjörg og bætir við: „Fólk á ekkert að upplifa neina pressu. Flestir hafa ekkert á móti því að fá fleiri knús og meiri athygli en sú ósk tengist ekkert einhverjum sérstökum dögum.“ Jóna segir fólk vera misjafnt og gera mismikið við slík tilefni. Einstaklingar læra með tímanum inn á væntingar hver annars.
Að vinna í sínum málum
Mörg pör hafa leitað til Jónu í gegnum árin. Mörg þeirra hafa náð góðum árangri í viðtölum hjá henni og hafa gjarnan orð á því að þau hefðu átt að byrja fyrr. „Ég hef ekki verið með karlmannahópnámskeið. Það myndi ekki ganga. Þeir eiga að vera svo miklir elskhugar og þora ekki að koma einir. Konur eru vanar að setjast niður og bera saman reynslu sína. Félagsmáti karlanna er bara öðruvísi,“ segir Jóna Ingibjörg og bætir við: „Ég forðast að segja fólki fyrir verkum. Þarf helst að þekkja mynstur parsins til að geta leiðbeint því.“ Jóna Ingibjörg hefur leiðbeint Íslendingum með kynlíf og samskipti allt frá árinu 1987. Hún er aðallega með pör í viðtölum og segir marga ná góðum árangri og aðsókn í viðtölin stigmagnist. Hún segir engar gullnar reglur ráða ríkjum í tilfinningaheiminum þar sem hvert par sé sérstakt. „Þetta er svo parabundið. Ég þarf að vita hvernig fólk hugsar. Engin stöðluð ráð. Ekkert nema það að haga sér út frá því besta í sér. Það vita allir hvað er ef fólk hefur samvisku og tilfinningalíf.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum