ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

13 ára pabbi fær hörð viðbrögð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:20 › 14. febrúar 2009
Alfie fær hörð viðbrögð frá forsætisráðherra Bretlands og David Cameron leiðtoga Íhaldsflokksins.

Alfie fær hörð viðbrögð frá forsætisráðherra Bretlands og David Cameron leiðtoga Íhaldsflokksins.

Hinn þrettán ára gamli Alfie Patten frá Bretlandi varð faðir á dögunum. Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og eru ekki allir á eitt sáttir. Meðal þeirra eru þeir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins.

„Við myndum öll vilja koma í veg fyrir að börn og unglingar verði barnshafandi,“ segir Brown í samtali við Press Association (PA) í Bretlandi. David Cameron sagði einnig við PA að foreldrahlutverk sé eitthvað sem unglingar ættu ekki einu sinni að hugleiða.

Þá segir fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins Iain Duncan Smith, sem rekur miðstöð fyrir félagslega réttsýni í Bretlandi að málið sé enn eitt dæmið um „brostið Bretland þar sem allt er leyfilegt.“

Alfie Patten sagði í viðtali við The Sun í gær að hann hlakki mikið til að takast á við föðurhlutverkið en barnsmóðir hans, Chantelle Steadman, er fimmtán ára gömul. Þau eru kærustupar og dvelur Alfie á heimili hennar flestum stundum. Breska blaðið The Times greinir frá því í dag að á undanförnum tíu árum hafi 40 piltar undir fjórtán ára aldri orðið feður.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.