ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Þóttist vera móðir sín til að taka út peninga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:00 › 9. desember 2009
Nyambi þótti víst ekki trúverðugur sem kona.

Nyambi þótti víst ekki trúverðugur sem kona.

25 ára karlmaður frá Franklin í New Jersey klæddi sig upp og þóttist vera móðir sín til að taka út peninga af bankareikningi hennar.

Tita Nyambi var enn staddur í Chase Bank í Franklin þegar lögregluna bar að garði á mánudaginn. Gjaldkera bankans grunaði að ekki væri allt með felldu og tilkynnti það til lögreglu að þar væri staddur maður, klæddur í kvenmannsföt sem talaði eins og kona í von um að taka út peninga af bankareikningi í afgreiðslulúgu bankans.

Nyambi afhenti gjaldkeranum skilríki móður sinnar og hafði reynt að falsa undirskrift hennar á úttektarseðil.

Hann var handtekinn og ákærður fyrir tilraun til fölsunar og þjófnaðar með blekkingu.

Lögreglunni í Franklin hefur væntanlega ekki þótt leiðinlegt að upplýsa um það að Nyambi var klæddur í bleika blússu af móður sinni, svartan frakka með höfuðklút þegar hann reyndi að svíkja út seðlana.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.