ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Okrað á eldriborgurum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:59 › 9. desember 2009
Fulltrúar Samfylkingarinnar í velferðarráði segja leigu upp á 170 þúsund krónur augljóslega vera of dýrt fyrir eldri borgara með 155 þús. á mánuði.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í velferðarráði segja leigu upp á 170 þúsund krónur augljóslega vera of dýrt fyrir eldri borgara með 155 þús. á mánuði.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í velferðarráði Reykjavíkurborgar segja nýjar þjónustuíbúðir fyrir aldraða allt of dýrar fyrir tekjulága eldriborgara í Reykjavík.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í velferðarráði lögðu fram bókun í tilefni þess að minnisblað um nýjar þjónustuíbúðir í Fróðengi var lagt fram.

Þar segir að velferðarsvið úthluti nú í sjö þjónustuíbúðir sem nýlega voru vígðar við Fróðengi og eru þar gjaldgengir þeir eldri Reykvíkingar sem ekki geta búið heima og þurfa aðstoð við útvegun húsnæðis.

Í tvær þessara íbúða kostar leigan 90-100 þúsund krónur á mánuði auk þjónustugjalds sem er 19.300.
Í fimm íbúðir af þessums jö er leigan 130-150 þúsund krónur á mánuði auk þjónustugjalds sem er sömuleiðis 19.300 krónur.

Fram kemur í bókun Samfylkingarmanna að fulltrúum finnist ekki boðlegt að bjóða upp á þjónustuíbúðir fyrir tekjulága eldri borgara í Reykjavík á verði sem er frá 110-170 þúsund krónur á mánuði með þjónustugjaldi.

„Hlutverk Reykjavíkurborgar er fyrst og fremst gagnvart þeim hópi. Eldri borgarar sem einungis hafa tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins hafa útborgað á mánuði um 155 þúsund krónur,“ segir í bókuninni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.