Tíu ráðherrar voru í ríkisstjórn þegar reglur um ráðherraorlof voru samþykktar í júní 1992. Reglurnar gerðu að verkum að ráðherrar fá, ólíkt öðrum launþegum, greitt út það orlof sem þeir hafa ekki nýtt sér þegar orlofsár þeirra rennur út.
Fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá ráðherraorlofinu í kvöldfréttum sínum og Vísir.is birti síðar í kvöld viðtal við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra sem sagði að sér væri ókunnugt um regluna og að eðlilegt væri að málið yrði skoðað.
Ráðherralaunin eru enn eitt dæmið um hvernig stjórnmálamenn hafa komið launakjörum sínum þannig að þeir hafi meiri rétt en aðrir landsmenn. Mörgum þessara greiðslna hafa verið gerð góð skil í DV. Stutt er að minnast þess hvernig ráðherrar og þingmenn höfðu löngum rýmri eftirlaunarétt en nokkrir aðrir launamenn á Íslandi, hvort sem var hjá hinu opinbera eða á almennum markaði. Þau forréttindi voru afnumin síðasta vetur.
DV hefur svo lýst ítarlega hvernig þingmenn og ráðherrar fá ýmsar sporslur sem bætast ofan á þingfararkaup þeirra og ráðherralaun. Þannig fá þingmenn greiddar 61.400 krónur á mánuði í ferðakostnað innan kjördæmis án þess að þurfa að framvísa reikningum. Ofan á það bætist svo að þeir geta fengið endurgreiddan kostnað vegna lengri ferða. Að auki fá þingmenn og ráðherrar greiddan starfskostnað, þeir geta valið að fá hann greiddan gegn framvísun reikninga en ella fá þeir mánaðarlegar fastar greiðslur upp á 66.400 krónur. Þá fá landsbyggðarþingmenn allt að 127 þúsund krónur í húsnæðis- og dvalarkostnað.
Þegar reglur um ráðherraorlof voru samþykktar voru níu karlar og ein kona í ríkisstjórn. Davíð Oddsson var forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkisráðherra. Aðrir ráðherrar voru Jón Sigurðsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Sighvatur Björgvinsson og Eiður Guðnason úr Alþýðuflokki. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins á þessum tíma voru auk Davíðs þeir Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sophusson, Ólafur G. Einarsson og Halldór Blöndal. Jóhanna er í dag forsætisráðherra, Davíð ritstjóri Morgunblaðsins og Sighvatur er framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar. Þorsteinn er nýlega hættur sem ritstjóri Fréttablaðsins og var skipaður í nefnd vegna ESB-aðildarumsóknar, Friðrik lét nýlega af starfi sem forstjóri Landsvirkjunar, Eiður og Jón Baldvin voru þar til fyrir nokkrum misserum sendiherrar og Jón Sigurðsson var síðast formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, svo seinni störf nokkurra þessara ráðherra séu upp talin.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs