ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Styrmir fletti ofan af klúðri Davíðs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:24 › 9. desember 2009
Bók Styrmis Gunnarssonar átti hugsanlega að verða varnarrit fyrir Davíð Oddsson en varð þess í stað áfellisdómur yfir gamla seðlabankastjóranum.

Bók Styrmis Gunnarssonar átti hugsanlega að verða varnarrit fyrir Davíð Oddsson en varð þess í stað áfellisdómur yfir gamla seðlabankastjóranum.

Gauti B. Eggertsson færir fyrir því rök á bloggi sínu að bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátrið, sé ekki það varnarrit fyrir Davíð Oddsson sem henni hafi verið ætlað. Þvert á móti sé að finna upplýsingar í bókinni sem feli í sér áfellisdóm yfir Davíð. ,,Einn alvarlegasti og dýrasti þáttur hrunsins er gjaldþrot Seðlabanka Íslands. Að stórum hluta skapaðist þetta gjaldþrot vegna veðlánaviðskipta bankans. Tapið af þeim nam í kringum 300 milljörðum króna, það er, fimm milljónum á hverja þriggja barna fjölskyldu. Þess vegna hækka nú skattar sem aldrei fyrr enda lagðist tapið, og vaxtakostnaðurinn sem því fylgdi, umsvifalaust á ríkissjóð," bloggar Gauti.

Hann útskýrir að Seðlabankinn, undir stjórn Davíðs, hafi tekið veð sem bankarnir skrifuðu upp á hver fyrir annan. Skuldabréfin, sem urðu nær verðlaus við hrunið, hafi verið kölluð ástarbréf í opinberri umræðu. ,,Þannig var bankakerfinu í heild nánast heimilt að prenta pening fyrir sjálfan sig gegn litlum sem engum veðum, jafnvel þótt seðlabankinn hefði vel getað tekið veð í útlánasafni bankanna (t.d. lán til fyrirtækja og einstaklinga) líkt og tíðkast annars staðar í heiminum þegar seðlabankar veita lán til þrautarvara," bloggar Gauti.

Hann segir að Styrmir ræði ekki ástæður þessara mistaka,eða nefni þau á nafn. ,,Óafvitandi, að því er virðist, varpar hann hins vegar skýru ljósi á að Seðlabanki Íslands hefði átt að vita betur."

,,... Ein málsvörn Davíðs Oddssonar, sem hann skrifaði í málgagn sitt í Reykjavíkurbréfi, er að hin afdrifaríku veðlánaviðskipti hefðu í engu verið frábrugðin því sem gengur og gerist hjá seðlabönkum. Ég hef áður bent á að þetta er ekki rétt. Þessi viðskipti stríddu gegn varrúðarreglum seðlabanka sem hafa verið kunnar allt frá skrifum breska hagfræðingsins Bagehot 1873. Ég hef áður rætt hvernig veitt eru lán til þrautarvara í Bretlandi og Bandaríkjunum, þar sem veð af þessu tagi eru nánast óþekkt, vegna þess að áhættugreining liggur á bak við þrautarvaralán þessara banka (sjá þessa færslu hér http://gautieggertsson.blogcentral.is/blog/2009/11/25/ologleg-astarbref/). Ég hef einnig rakið að Seðlabanka Svíðþjóðar og Sviss er beinlínis óheimilt að taka skuldabréf innlendra banka sem veð í almennum veðlánaviðskiptum, líklega vegna þeirrar alvarlegu áhættu sem þau kunna að skapa skattgreiðendum þessara landa ef til hruns kemur...," bloggar Gauti.

Hann segir að bók Styrmis útskýri að íslensku bankarnir reyndu þann sama leik gagnvart Seðlabanka Evrópu.
,,... Aðalbankastjóri evrópska seðlabankans, Trichet, einn valdamesti maður í heiminum í dag, hringdi ævareiður í Davíð Oddsson, og krafist þess að forsvarsmenn bankanna, og íslenskra stjórnvalda, kæmu á sinn fund -- strax. Í stað ástarbréfa þyrfti að setja raunveruleg veð, annars yrðu bankarnir settir á hausinn innan tíu daga. Þetta var í apríl 2008, meira en hálfu ári fyrir hrun. Seðlabanka Íslands hefði því átt að vera full ljóst, hálfu ári fyrir hrun, hvers lags hættu ástarbréfarviðskipi gátu skapað fyrir Seðlabanka Íslands, og íslenska skattgreiðendur, í ljósi þess að Evrópski Seðlabankinn bókstaflega hótaði að loka íslensku bönkunum ef ekki yrði gripið í taumana og komið í veg fyrir af viðskipti af þessu tagi í hans eigin veðlánaviðskiptum. Það hlýtur að hafa komið fram í þessum samtölum af hverju svona lagað gengur ekki út frá almenninum viðmiðum í rekstri seðlabanka. Áhættan sem þetta skapar skattgreiðendum er einfaldlega óásættanleg ...," bloggar Gauti.

Hann segir að niðurstaðan sé sú að Seðlabanka Íslands hefði átt að vera fullljós sú gífulega hætta sem ástarbréfin sköpuðu skattgreiðendum ,,Mér er hulin ráðgáta af hverju Seðlabanki Íslands lét viðskiptin með ástarbréfin viðgangast miðað við þau viðbrögð sem hann fékk frá starfsbræðrum sínum þegar íslensku bankarnir reyndu svipaðan leik erlendis," bloggar Gauti.
Blogg Gauta: http://gautieggertsson.blogcentral.is/blog/2009/12/9/astarbref-styrmis-gunnarssonar/



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.