ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Skatturinn vill sinn hlut af pókertekjum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:29 › 9. desember 2009
Ímyndin af pókerspilurum er af mönnum í spilavíti. Ungir Íslendingar stunda hins vegar vefspilavítin í meira mæli en þau sem er að finna í húsum og skipum.

Ímyndin af pókerspilurum er af mönnum í spilavíti. Ungir Íslendingar stunda hins vegar vefspilavítin í meira mæli en þau sem er að finna í húsum og skipum.

„Það ætti að greiða skatt af þessu,“ segir Aðalsteinn Hákonarson, forstöðumaður eftirlitssviðs ríkisskattstjóra, um tugmilljóna vinningsfé tveggja íslenskra pókerspilara sem hafa gert það gott á erlendum pókersíðum.

DV greindi frá því í dag að ungur pókerspilari úr Garðabænum vann 120 þúsund dollara, andvirði 14 milljóna króna, í pókerspili á erlendri vefsíðu. Annar íslenskur pókerspilari hefur unnið meira en 100 milljónir króna. Á móti kemur að báðir hafa bæði unnið og tapað fé í pókerspili og því er afrakstur þeirra ekki endilega jafn mikill og þessar tölur gefa til kynna.

„Svona mál hafa alltaf verið undir yfirborðinu,“ segir Aðalsteinn. „Yfirfærslurnar fara í gegnum bankakerfið og þar er regluverk sem athugar með peningaþvætti og annað. En maður veit ekki hvort þessu er skilað hingað heim. Það er þannig í skattaeftirlitinu að það verður aldrei hægt að ná öllu.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.