ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Sjómaður mátti ekki veiða fyrir fátæka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:00 › 9. desember 2009
Aldrei hafa fleiri leitað aðstoðar vegna fátæktar. Sjómenn sem vildu leggja til fisk fengu ekki leyfi til þess.

Aldrei hafa fleiri leitað aðstoðar vegna fátæktar. Sjómenn sem vildu leggja til fisk fengu ekki leyfi til þess.

,,Sjómaður, sem hafði samband við okkur, og vildi veiða tonn af fiski og flaka fyrir okkur fékk afsvar við beiðni um að fiskurinn yrði utan kvóta. Sjávarútvegsráðuneytið sagði nei. Sjómennirnir finna til samúðar með þeim sem búa við bág kjör og vildu með þessu létta undir. Það var með samþykki útgerðarinnar en sjávarútvegsráðuneytið stöðvaði þau áform. Þetta er mjög dagurlegt," segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, í samtali við DV.
Sjómaðurinn sem um ræðir hafði við hana samband fyrir hönd áhafnar siinnar en þeir urðu að hætta við góðverkið þegar ráðuneytið þverneitaði þeim um að fá fiskinn utan kvóta.

Í dag var vikulegur úthlutunardagur Fjölskylduhjálparinnar. Ásgerður segir að reiknað hafi verið með 400 manns en 460 hafi komið. Dagurinn er orðinn langur hjá sjálfboðaliðum Fjölskylduhjálparinnar sem hafa staðið vaktina frá því í morgun og eru enn að. ,,Þetta var tvöföld úthlutun, bæði jólamaturinn og hefðbundin matarúthlutun. En við erum svo heppin að velunnarar okkar höfðu lagt okkur nóg til og enginn þurfti að snúa frá án þess að fá aðstoð," segir Ásgerður.
Hún segir að neyðin fari mjög vaxandi og þeim fjölgi stöðugt sem þurfi að leita sér aðstoðar.
,,Margir eru að koma í fyrsta sinn til að leita aðstoðar. Það eru erfið spor. Fólk er að koma allstaðar að af sunnanverðu landinu. Við getum hjálpað þeim sem leita til okkar. Það er að þakka velvilja fyrirtækja og einstaklinga," segir Ásgerður.
Næsta úthlutin verður á næsta miðvikudag en það verður sú næstsíðasta fyrir jól.
,,Mér sýnist að með þessu framhaldi náum við hjálpa 1500 fjölskyldum á þremur úthlutunardögum," segir Ásgerður Jóna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.