Veronica Deramous, fertug kona frá Washington í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir tilraun til morðs en henni er gefið að sök að hafa reynt að stela ófæddu barni úr kviði heimilislausrar konu með því að skera hana upp.
Deramous hélt 29 ára konu fanginni á heimili sínu í fimm daga eftir að hún hafði vingast við hana í athvarfi fyrir heimilislausa. Hún hafði sagt kærasta sínum og fjölskyldu að hún væri ólétt en hún lokkaði fórnarlambið í íbúð sína með loforðum um að gefa henni barnaföt.
Lögreglan segir Deramous hafa bundið hin óléttu konu og reynt að fjarlægja barnið úr kvið hennar með dúkahníf og rakvélarblöðum.
Deramous mun hafa keflað fórnarlamb sitt, hækkað sjónvarpið í botn til að yfirgnæfa hróp hennar á hjálp og sagt: „Þú ert hörð af þér. Þú getur vel þolað það sem ég er að fara að gera við þig.“
Óléttu konunni tókst að sleppa úr prísundinni eftir að Deramous sofnaði.
Nágranni hringdi í lögregluna eftir að hafa séð konuna alblóðuga á bílastæði byggingarinnar þar sem Deramous býr.
Læknum tókst að taka á móti stúlkubarni konunnar með keisaraskurði. Búist er við að konan nái sér að fullu og stúlkubarninu hefur verið gefið nafnið Miracle Sky.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung