ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Ræningi þekktist af andfýlu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:30 › 9. desember 2009
Ræninginn hefði mátt nota munnsprey.

Ræninginn hefði mátt nota munnsprey. Ananova.

Ræningi í Bandaríkjunum hefði mátt huga betur að hreinlæti sínu því að starfsmaður í banka, sem hann hafði rænt fyrir skömmu, gat manngreint hann vegna hrikalegrar andfýlu úr honum. Ræninginn hefur því fengið viðurnefnið „Bad Breath Bandit“ í Bandaríkjunum. Ræninginn andfúli er enn ófundinn. Er hann sneri aftur í banka í síðustu viku sem hann hafði rænt áður vissi einn starfsmaður bankans strax að þarna væri sami maður á ferð og hafði áður rænt bankann, vegna þess hve andfúll hann var.

Manninum er þannig lýst af lögreglu að hann sé virkilega illa tilhafður, með mjög gulur tennur og hrikalega andfúll. Er hvítan í augum hans einnig sögð gul og að hann lykti virkilega illa.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.