Lögreglunni hefur borist formleg kæra vegna meintrar nauðgunar eftir karlakvöld íslensks íþróttafélags nýverið. Hinn kærði hefur leikið fyrir hönd Íslands í íþrótt sinni en hið meinta fórnarlamb er sautján ára gamalt.
Rannsókn lögreglu er í fullum gangi en henni barst tilkynningin, snemma laugardagsmorguns, fyrir rúmum fjórum vikum. Atvikið á að hafa átt sér stað að loknu karlakvöldi hjá íþróttafélagi sem viðkomandi spilar fyrir. Stúlkan hringdi til lögreglu sem kom henni til aðstoðar og fór með hana á neyðarmóttöku vegna nauðgana í Fossvogi. Þar hlaut hún aðhlynningu og áverkavottorð liggur fyrir frá móttökunni. Þar hefur henni síðan verið skipaður réttargæslumaður.
Stúlkan hefur átt erfitt uppdráttar og hefur samkvæmt heimildum DV varla þorað í skólann eftir hina meintu nauðgun. Hún hefur kært atvikið og beðið er niðurstöðu lögreglu hvort málið fari á ákærustig.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna