Kaffi hjálpar fólki ekki að losna úr ölvunarástandi, heldur eykur það þvert á móti hættuna á að ölvaðir fari sér að voða. Samkvæmt nýrri rannsókn á músum getur kaffi talið fólki trú um að það sé að ná áttum, en það er hins vegar blekking.
„Fólk sem finnur til þreytu og ölvunar þegar það drekkur áfengi er líklegra til að átta sig á því að það sé fullt,“ útskýrir Dr. Thomas Gould, stjórnandi rannsóknarinnar, í samtali við fréttavef BBC. „Fólk sem hins vegar hefur neytt bæði áfengis og koffíns kann að standa í trú um að það sé árvökult og fært um að takast á við hættulegar aðstæður, til dæmis að keyra ölvað eða koma sér í varasama stöðu félagslega.“
Rannsóknin gekk út á að fylla mýs og verða þeim til óþæginda með skærum blikkljósum og háum hvellum, sem þær gátu forðast með því að fara réttar leiðir í völundarhúsi. Ölvaðar mýs voru afslappaðar, en mýs undir áhrifum koffíns voru bæði örar og uppstökkar.
Þrátt fyrir að mýsnar sem fengu koffín ofan í vínanda væru örari og meira á varðbergi voru þær jafnóhæfar í að forðast áreitið og þær sem einungis voru ölvaðar.
Viðmiðunarhópurinn, mýsnar sem haldið var edrú og koffínlausum, stóð sig hins vegar best.
Niðurstaðan er að kaffi lætur fólki líða eins og það sé edrú, þegar það er ölvað, og eykur hættuna á að fólk lendi í átökum. Það gerir því illt verra.
„Það kann að heilla fólk að vera vakandi alla nóttina og drekka, en allt bendir til þess að sambland koffíns og áfengis hafi í för með sér alvarlega áhættu. Það er sérstaklega mikilvægt að kveða niður goðsögnina um að kaffi láti renna af fólki, því neysla á kaffi með áfengi getur þvert á móti leitt til slæmra ákvarðana og hrikalegrar niðurstöðu,“ útskýrir Dr. Gould.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu