Síðdegis funduðu Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, um Hannes Hólmstein Gissurarson háskólaprófessor. Jóhannes er afar óánægður með framgöngu prófessorsins og ætlar að leita leiða til að koma honum frá.
Jóhannes sakar Hannes Hólmstein um að dreifa fluguritum um son sinn, Jón Ásgeir, innan veggja háskólans og þannig rógburði um fjölskyldu sína. Sjálfur vísaði Hannes því alfarið á bug í samtali við DV. Jóhannes segist vera kominn með nóg af framgöngu Hannesar.
"Við rektor áttum ánægjulegan fund saman. Hún leiddi mig inn á þær brautir sem ég þarf að fara til að koma óánægju minni í réttan farveg. Ég er sáttur en get ekki tjáð mig að öðru leyti hvað fór á milli okkar. Um samtal okkar á fundinum gildir trúnaður," segir Jóhannes.
"Það er meira að vænta í þessu máli en það gæti tekið tíma. Ég hef verið afar óánægður með prófessorinn og rektor tók vel á móti mér. Yfir því get ég ekki kvartað. Nú mun ég huga að næstu skrefum og það er engin spurning að þau verða tekin."
DV hefur áður birt sjálft fluguritið sem deilt er um og fjallað um þann boðskap sem ritið boðar. Hannes bendir einnig á að það megi finna á slóðinni: http://i.imgur.com/aCOwC.jpg





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna