Þorsteinn Ásgeirsson var í dag dæmdur til sjö mánaða fangelsisvistar og greiðslu 20 milljóna króna í ríkissjóð fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Hann var í fyrirsvari fyrir félagið Þ.Á. slf. sem hirti ekki um að greiða ríkissjóði samanlagt tæpar tíu milljónir króna á árunum 2003 til 2008.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Þorsteinn er dæmdur fyrir slík brot. Hann var jafnframt dæmdur til greiðslu rúmlegra fjögurra milljóna króna í sekt fyrir sambærileg brot árið 2002.
Greiði Þorsteinn ekki 20 milljóna króna sektina í ríkissjóð, sem hann var í dag dæmdur til að greiða, verður hann að sitja inni í fimm mánuði til viðbótar þeim sjö sem hann þarf að afplána fyrir brot sín.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir