ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Furðuljósið sem skók Noreg var eldflaug Rússa - myndband

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:10 › 9. desember 2009
Margir sjónarvottar í Þrændalögum og Finnmörku tóku myndir af þessum furðulegu teiknum á dimmum skammdegishimninum í morgun.

Margir sjónarvottar í Þrændalögum og Finnmörku tóku myndir af þessum furðulegu teiknum á dimmum skammdegishimninum í morgun.

Hringsólandi undraljósið sem sást á himni yfir Norður-Noregi snemma í morgun var nánast örugglega rússnesk eldflaug, að mati norsks stjörnufræðings. Fjöldi furðu lostinna Norðmanna hringdi í þarlenda veðurstofu og fjölmiðla til að tilkynna að á himnum væri ljósagangur, sem líktist engu sem þeir hefðu séð áður.

„Það er augljóst að þetta kemur frá rússnesku yfirráðasvæði,“ segir Knut Jørgen Røed Ødegaard stjörnufræðingur við vef norska dagblaðsins Verdens gang. Hann hefur rannsakað myndir og myndbönd af ljósinu í dag og komist að niðurstöðu.

„Maður sér hvernig ljósfyrirbærið hreyfist. Ljós sem koma að ofan hegða sér á annan hátt. Ég er 99,9 prósent viss um að þetta sé rússnesk eldflaug.“

Rússar hafa neitað því að um eldflaug á þeirra vegum hafi verið að ræða og norsk yfirvöld vilja ekki slá því föstu enn sem komið er.

Hér má sjá myndband sem náðist af ljósfyrirbærinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.