ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Förðunarfræðingur þarf að fela húðflúr nýnasista fyrir dómi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:34 › 9. desember 2009
  • John Ditullio verður vel málaður fyrir kviðdómendum. Nasistatáknin fá að fjúka.

    John Ditullio verður vel málaður fyrir kviðdómendum. Nasistatáknin fá að fjúka.

Nasistahúðflúr og annar dónaskapur sem nýnasisti frá St. Petersburg í Flórída er með í andlitinu eru ekki til að hjálpa honum fyrir framan kviðdómi í Flórída. Þetta er niðurstaða dómara í morðmáli gegn John Ditullio sem óttaðist að nýnasistinn ætti ekki möguleika á sanngjörnum réttarhöldum með óskapnaðinn framan í sér.

Dómarinn komst því að þeirri niðurstöðu að ríkið myndi borga förðunarfræðing fyrir að hylja húðflúr Ditullio, en hann er sakaður um hatursglæp. Hann er sakaður um morðið á sautján ára pilt sem hann taldi vera samkynhneigðan.

Förðunarfræðingurinn þarf því að hylja hakarkross, gaddavír og dónaleg orð sem Ditullio lét húðflúra á sig eftir að hann var handtekinn fyrir morðið. Ekki má þó fela nein húðflúr sem Ditullio var með áður en hann var handtekinn fyrir morðið.

Ditullio á yfir höfði sér dauðadóm vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.