Bandarísku góðgerðarsamtökin The Silver Lining Charity hafa styrkt Fjölskylduhjálp Íslands með veglegri peningagjöf. Þetta eru önnur erlendu góðgerðarsamtökin sem styrkja Fjölskylduhjálp Íslands á skömmum tíma en í nóvember barst fjölskylduhjálpinni styrkur frá hollenskum samtökum upp á 2.500 evrur. Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands, var að vonum þakklát þegar hún veitti styrknum viðtöku í gær.
„Þetta er hópur í Los Angeles sem safnaði þessu og átti að koma á góðan stað á Íslandi og þessi kona velur okkur og afhenti í gær,“ segir Ásgerður og segir peningana eiga eftir að koma sér vel í matarkaup hjá fjölskylduhjálpinni. Um er að ræða um 400 þúsund krónur sem Fjölskylduhjálp Íslands hlýtur og munu þeir fjármunir vafalaust nýtast vel.
1.200 fjölskyldum hjálpað í desember
Í dag er fyrsti úthlutunardagur Fjölskylduhjálpar Íslands en síðan er önnur úthlutun þann 16. þessa mánaðar og sú síðasta þann 21.desember.
„Og það þarf enginn að sækja um aðstoðina hér fyrirfram áður en það kemur. Fólk kemur bara beint til okkar,“ segir Ásgerður. Hún segir að ráð sé gert fyrir að hægt verði að aðstoða yfir 400 fjölskyldur hvern úthlutunardag í desember. Alls því um 1.200 fjölskyldur. „Fólk fær bæði jólaaðstoð hérna sem og hefðbundna aðstoð, auk jólapakkanna að sjálfsögðu,“ segir Ásgerður.
Samtök stofnuð af íslenskum hjónum
The Silver Lining Charity hafa það að markmiði að safna fjármunum sem renna óskiptir til hjálpar fátæku fólki á Íslandi. Samtökin eru stofnuð af íslenskum hjónum sem búsett eru í Bandaríkjunum. Samtökin aðstoða verðug góðgerðarsamtök og hjálparstofnanir sem hafa séð fólki fyrir matvælun en eiga nóg með að dreifa mat og nauðsynjavörum þannig að þau hafa ekki mannskap til að standa í fjáröflun. Þar koma samtökin og aðstoða.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“