ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Dýrir ráðherrabílar

19:49 › 9. desember 2009
Ráðherrabílar á Bessastöðum

Ráðherrabílar á Bessastöðum

  • Maður kastaði eggjum í ráðherrabíl Björns Bjarnasonar fyrir ári síðan.

    Maður kastaði eggjum í ráðherrabíl Björns Bjarnasonar fyrir ári síðan.

Sjúkraflutningamenn í Árnessýslu segja að kostnaðurinn við ráðherrabíla ríkisstjórnarinnar sé álíka hár og kostnaður við alla sjúkraflutninga í Árnessýslu. Þó á að skera niður í sjúkraflutningum í sýslunni um fjórðung á næsta ári. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld og þar kom fram megn óánægja sjúkraflutningamanna með þessa tilhögun.

Í frétt Stöðvar 2 í kvöld sagði að skera eigi niður 17 milljónir í sjúkraflutningum á næsta ári, eða sem samsvarar kostnaði við rekstur og launakostnað vegna tveggja ráðherrabíla.

Ráðherrabílar hafa ítrekað komist í fréttir síðustu misseri. Þannig varð frægt þegar aðsúgur var gerður að ráðherrabíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra í búsáhaldabyltingunni. Það gerðist þegar Geir reyndi að komast frá Stjórnarráðinu áður en mótmælendur bar þar að. Honum tókst það ekki og var bíl hans ruggað og barið á rúður og hliðar bílsins.

Þá var eggjum kastað í ráðherrabíl Björns Bjarnasonar, þáverandi dómsmálaráðherra, í nóvember í fyrra.

En ráðherrabílar komust líka í fréttirnar fyrir búsáhaldabyltingu. Þannig varð frægt þegar atvinnubílstjórar króuðu af bíl og bílstjóra Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, þegar þeir kröfðust þess að álögur á eldsneyti yrðu lækkaðar. Þá varð bíll Geirs innlyksa í Tryggvagötu þar sem Geir var á fundi, ekki nóg með það heldur var bílnum ólöglega lagt og bílstjórinn því sektaður. DV kannaði vegalengdir af þessu tilefni og komst að því að leiðin sem Geir var ekið í bílnum frá Stjórnarráðinu að fundarstað í Tryggvagötu var lengri en vegalengdin sem Geir hefði þurft að ganga.

Kostnaður við ráðherrabíla er fólginn í kaupverði bílanna, sem eru iðulega ekki af ódýrustu gerð, eldsneytis- og viðhaldskostnaði auk launa bílstjórans. Sektir lenda hins vegar að sögn ráðuneyta sem leitað hefur verið til á bílstjóranum sjálfum. Ráðherrar geta hins vegar tapað fé persónulega noti þeir ráðherrabíl í stað einkabíls. Ögmundur Jónasson svaraði til dæmis í maí fyrirspurn sem honum barst á heimasíðu sinni og sneri að ráðherrabifreið hans í heilbrigðisráðuneytinu. Þar sagði Ögmundur að óhagstæðara væri fyrir hann fjárhagslega að nota þá bifreið vegna þess að hann fái ekki fastan bílastyrk alþingismanna fyrir vikið. Fastur bílastyrkur þingmanna nemur rúmum 60 þúsund krónum á mánuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.