ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Dularfull ljós á himnum í Norður-Noregi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:27 › 9. desember 2009
Frændur okkar í Norður-Noregi horfðu forviða á þessi ótrúlegu ljós á himninum, sem líta út fyrir að hafa verið hönnuð í tölvu en voru mynduð í raun og veru í morgun.

Frændur okkar í Norður-Noregi horfðu forviða á þessi ótrúlegu ljós á himninum, sem líta út fyrir að hafa verið hönnuð í tölvu en voru mynduð í raun og veru í morgun.

Norska geimvísindastofnunin telur að gríðarstór bjartur spírall sem sást á himni í Norður-Noregi í morgun hafi stafað frá eldflaug sem rússneskur kafbátur skaut á loft frá Hvítahafi. Rússneskir flotaforingjar hafa vísaði þeirri útskýringu á bug og segjast ekki hafa skotið neinum eldflaugum.

Margir sjónarvottar í Þrændalögum og Finnmörku tóku myndir af þessum furðulegu teiknum á dimmum skammdegishimninum. Margir efast um að um eldflaug hafi verið að ræða.

Undrið hófst þegar blátt ljós að fjallabaki virtist svífa upp á himinninn. Ljósið nam staðar á himninum og fór að hreyfast í hringi. Nokkrum andartökum síðar fyllti spírallaga ljósið himinninn. Blágrænir geislar skutust út úr miðju spíralsins í 10 mínútur áður en ljósin hurfu alveg. Þúsundir manna urðu vitni af þessum undrum og hringdu í ofboði á Loftsteinastofnun Noregs og í fleiri stofnanir. Stjörnufræðingar draga í efa að um norðurljós hafi verið að ræða.

Sjónarvottur sem Verdens Gang ræddi við í dag líkja ljósunum við stjörnuhrap „sem snerist í hringi, aftur og aftur.“

Stjörnufræðingurinn Knut Jørgen Røed Ødegaard sagði í viðtali við VG að hann hefði aldrei séð annað eins: „Mér datt í fyrst í huga að þetta væri loftsteinn, en það getur ekki verið, þetta tók svo langan tíma.“

„Ljósin snerust og sprungu á himninum,“ sagði sjónarvotturinn Totto Erikson í Tromsø í samtali við blaðamann VG.

Hér má sjá myndband er sjónarvottur sendi Verdens Gang: http://www.vgtv.no/?id=27553



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.