Fimm innbrot voru tilkynnt til lögreglu í gær og nótt. Dekkjaþjófnaður og búðarhnupl svo eitthvað sé nefnt.
Fimm innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Tvö fyrirtæki í Breiðholti urðu fyrir barðinu á innbrotsþjófum en einhverju af peningum var stolið úr öðru þeirra.
Þjófur var líka á ferðinni í húsi í Grafarholti og hafði tekið til ýmsa muni þegar að honum kom styggð en kauði fór tómhentur af vettvangi. Í Garðabæ var brotist inn í vinnuskúr en ekki er ljóst hvort einhverju var stolið.
Þá var sjónauki tekinn úr bíl í miðborginni.
Kona á sjötugsaldri var að stela jólaskrauti
Hnuplmál komu sömuleiðis á borð lögreglunnar í gær en kona um fimmtugt var tekin fyrir að stela snyrtivörum í verslun í Kringlunni. Í annarri verslun í borginni var kona á sjötugsaldri líka gripin glóðvolg við vafasama iðju en sú hafði tekið nokkuð af jólaskrauti ófrjálsri hendi. Og í Hafnarfirði var dekkjaþjófur á kreiki en bíll í bænum var tjakkaður upp og undan honum tekið eitt dekk. Þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar eigandi bílsins kom grunlaus á vettvang, settist í ökumannssætið og hugðist aka bílnum. Eins og við var að búast komst hann ekki langt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna