ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Bjarni: Stýrði og átti í BNT en segir Vafning ekki koma sér við

13:24 › 9. desember 2009
Bjarni segir að hann hafi skrifað upp á veðsamninga fyrir hönd föður síns og frænda því þeir hafi verið í útlöndum.

Bjarni segir að hann hafi skrifað upp á veðsamninga fyrir hönd föður síns og frænda því þeir hafi verið í útlöndum.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarformaður BNT og N1, segist aldrei hafi komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fjárfestingaverkefni eignarhaldsfélagsins Vafnings í fasteignaverkefni Sjóvár í Makaó. Vafningur keypti fasteignaverkefnið af dótturfélagi Sjóvár í í febrúar í fyrra og voru BNT og félög í eigu föður og föðurbróður Bjarna hluthafar í félaginu. Bjarni staðfestir jafnframt að hann hafi átt hlutabréf í BNT á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008.

„Ég hef aldrei komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fjárfestingaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni Benediktsson, aðspurður um hvaða aðkomu hann hafi haft af kaupum Vafnings á háhýsinu í Makaó af dótturfélagi Sjóvár.

Aðspurður af hverju Bjarni hafi fengið umboð frá félögunum þremur sem voru í eigu fjölskyldu hans - BNT, Hrómundi og Hafsilfri - til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama dag og félagið keypti turninn í Makaó segir Bjarni: „Þeir voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyrir sína hönd að skrifa undir ákveðinn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föðurbróður hans, Einars.

Aðspurður hvort Bjarni hafi ekki sjálfur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma segir Bjarni: „Jú, en það er langt síðan,“ segir Bjarni og bætir því við að hann hafi átt bréfin á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008. „En hvað kemur mér það við þó BNT eigi lítinn hlut í þessum félagi?“ segir Bjarni, sem var eins og áður segir, stjórnarformaður í BNT og N1 þegar Vafningur keypti fasteignaverkefnið í Makaó.

DV mun birta frekari umfjöllun um viðskipti Vafnings og aðkomu Bjarna Ben að félaginu á föstudaginn. Jafnframt mun DV birta gögn um aðkomu Bjarna að Vafningi þegar kaupin á turninum í Macau gengu í gegn.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.