ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

„10 hlutir sem Obama gæti lært af Tiger“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:23 › 9. desember 2009
  • Tiger og Obama á samsettri mynd á forsíðu Golf Digest.

    Tiger og Obama á samsettri mynd á forsíðu Golf Digest.

Hver konan á fætur annarri stígur nú fram og heldur fram að hún hafi átt í ástarsambandi við Tiger Woods. Auglýsingar með kappanum hafa verið að detta úr sýningu. Styrktaraðilar hugsa sinn gang. Veröldin virðist vera að hrynja í kringum Tiger Woods þessa dagana. Fagtímaritin finna líka fyrir skandalinum og nú eru ritstjórar hins virta golftímarits Golf Digest í bobba.

Tiger Woods og Barack Obama Bandaríkjaforseti prýða forsíðu janúarheftis Golf Digest og þrátt fyrir að vera ekki komið út þá er forsíðuumfjöllunin strax farin að valda usla. Lesendur og áskrifendur tjá sig um málið á heimasíðu tímaritsins og sitt sýnist hverjum. Margir virðast telja að orðspor tímaritsins muni skaðast en aðrir vilja fyrirgefa kappanum fyrir afglöp hans.

Það er þó ekki síst forsíðutextinn sem vakið hefur hörð viðbrögð í ljósi skandalsins en þar má sjá samsetta mynd af Tiger í hlutverki kylfusveins og Obama í hlutverki Tigers að pútta undir fyrirsögninni: „10 hlutir sem Obama gæti lært af Tiger“

Í blaðinu skrifa íþróttafréttamenn og atvinnukylfingar um hvað þeir telji að forsetinn geti lært af besta kylfing veraldar, og öfugt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.