Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Miðaldra ljóshærð kona var flutt á sjúkrahús í morgun og hafa erlendir fjölmiðlar staðfest það að neyðarlínusímtalið kom frá heimili Tiger Woods. Líklegt er talið að þarna hafi verið tengdamóðir Tiger Woods.
Vefsíðan TMZ.com greinir frá því að ung ljóshærð kona, sem jafnvel er talin vera Elin, eiginkona Woods, hafi elt sjúkrabílinn frá heimilinu í Windermere í Flórída. Bifreiðin sem hún ók er af tegundinni Cadillac Escalade, samskonar bifreið og Tiger klessukeyrði á dögunum. Hann á víst fleiri en einn.
Vitað er að móðir Elinar er stödd í Bandaríkjunum til að vera með dóttur sinni sem skiljanlega gengur í gegnum erfiða tíma.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung