Mögulegur andstæðingur Frakklandsforseta. Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Dominique Strauss-Kahn, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hefur hótað málsókn á hendur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, vegna meintra óþokkabragða sem sá fyrrnefndi fullyrðir að skósveinar Sarkozys hafi viðhaft til að varpa rýrð á hann sem mögulegan keppinaut í næstu forsetakosningum.
Strauss-Kahn, sem er sósíalisti, er sagður hafa lesið yfir hausamótunum á Sarkozy þegar þeir hittust fyrir tilviljun á karlaklósetti á G20-ráðstefnunni í Pittsburgh í Bandaríkjunum í september, og hellt sér yfir hann vegna sögusagna um meint ástarævintýri Dominiques Strauss-Kahn utan hjónabands.
Samkvæmt einni frásögn sagði Strauss-Kahn við Sarkozy að hann væri búinn að fá sig fullsaddan af slúðri um einkalíf sitt og sögusögnum um ljósmyndir af honum og einhverjum konum sem forsetaembættið gæti velt honum upp úr ef til kosningabáráttu kæmi.
„Ég veit að þetta kemur allt frá forsetahöllinni,“ á Strauss-Kahn að hafa sagt við Sarkozy, samkvæmt franska tímaritinu Le Piont. „Segðu strákunum þínum að hætta þessu eða ég höfða mál.“
Dominique Strauss-Kahn hefur löngum verið talinn sá eini á hinum sundurleita vinstri væng sem gæti verið verið ógn við Sarkozy, en vinsældir Sarkozys hafa dvínað þó nokkuð að undanförnu.
Nicolas Sarkozy vann ötullega að því að tryggja Strauss-Kahn stöðu framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með aðsetur í Washington og leiddar hafa verið að því líkur að ætlun Sarkozys hafi verið að halda Strauss-Kahn fjarri París og leiðtogahlutverki stjórnarandstöðu sósíalista.
Undanfarið hafa vaknað vangaveltur um hvort Dominique Strauss-Kahn hyggi á heimferð til að takast á við Sarkozy í forsetakosningunum 2012.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu